Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1355, 139. löggjafarþing 573. mál: ávana- og fíkniefni og lyfjalög (leyfisveitingar og gjaldtaka).
Lög nr. 42 9. maí 2011.
I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 65/1974, um ávana- og fíkniefni, með síðari breytingum.
Lyfjastofnun getur veitt undanþágu frá ákvæðum 1. og 2. mgr. þegar sérstaklega stendur á. Slíkar undanþágur eru ávallt afturtækar. Ráðherra er heimilt með reglugerð að setja frekari skilyrði og takmarkanir á veitingu undanþágna og mæla fyrir um önnur atriði er varða framkvæmd þessa ákvæðis.
Inn- og útflutningur, sala, kaup, skipti, afhending, móttaka, framleiðsla, tilbúningur og varsla efna þeirra er greinir í 1. mgr. er einungis heimil lyfsölum, lyfjaheildsölum, lyfjaframleiðendum og þeim sem Lyfjastofnun hefur veitt sérstakt leyfi til slíks. Sækja þarf um sérstakt leyfi til Lyfjastofnunar í hvert sinn. Slík leyfi eru ávallt afturtæk. Ráðherra er heimilt með reglugerð að setja frekari skilyrði og mæla fyrir um takmarkanir á slíkri starfsemi og önnur atriði er varða framkvæmd þessa ákvæðis.
II. KAFLI
Breyting á lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum.
Þingskjal 1355, 139. löggjafarþing 573. mál: ávana- og fíkniefni og lyfjalög (leyfisveitingar og gjaldtaka).
Lög nr. 42 9. maí 2011.
Lög um breytingu á lögum nr. 65/1974, um ávana- og fíkniefni, og lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum (flutningur leyfa og undanþágna til Lyfjastofnunar og gjaldtaka).
1. gr.
3. mgr. 2. gr. laganna orðast svo:Lyfjastofnun getur veitt undanþágu frá ákvæðum 1. og 2. mgr. þegar sérstaklega stendur á. Slíkar undanþágur eru ávallt afturtækar. Ráðherra er heimilt með reglugerð að setja frekari skilyrði og takmarkanir á veitingu undanþágna og mæla fyrir um önnur atriði er varða framkvæmd þessa ákvæðis.
2. gr.
2. mgr. 3. gr. laganna orðast svo:Inn- og útflutningur, sala, kaup, skipti, afhending, móttaka, framleiðsla, tilbúningur og varsla efna þeirra er greinir í 1. mgr. er einungis heimil lyfsölum, lyfjaheildsölum, lyfjaframleiðendum og þeim sem Lyfjastofnun hefur veitt sérstakt leyfi til slíks. Sækja þarf um sérstakt leyfi til Lyfjastofnunar í hvert sinn. Slík leyfi eru ávallt afturtæk. Ráðherra er heimilt með reglugerð að setja frekari skilyrði og mæla fyrir um takmarkanir á slíkri starfsemi og önnur atriði er varða framkvæmd þessa ákvæðis.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:- Við 9. tölul. 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Jafnframt veitir Lyfjastofnun leyfi og undanþágur samkvæmt lögum um ávana- og fíkniefni.
- Í stað orðanna „og fyrir mat á stöðluðum forskriftum skv. 5. gr.“ í 8. mgr. kemur: fyrir mat á stöðluðum forskriftum skv. 5. gr. og fyrir veitingu leyfa og undanþágna samkvæmt lögum um ávana- og fíkniefni, sbr. 9. tölul. 1. mgr.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 3. maí 2011.